Fréttir

Opnun sýningar í Þjóðmenningarhúsinu

13.01 2011

Sýningin „Óskabarn - Æskan og Jón Sigurðsson“ verður opnuð í Þjóðmenningarhúsinu laugardaginn 15. janúar kl. 15.

Forsætisráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, opnar sýninguna. Salóme Þorkelsdóttir, formaður stjórnar Þjóðmenningarhússins, og Sólveig Pétursdóttir, formaður Afmælisnefndar Jóns Sigurðssonar, flytja ávörp.

Sýningin er samstarfsverkefni Þjóðmenningarhússins og Afmælisnefndar og jafnframt fyrsti viðburður afmælisárs Jóns Sigurðssonar, en 17. júní n.k. verða liðin 200 ár frá fæðingu hans.

Sýningin er ætluð börnum. Þetta er litrík sýning um sveitastrák í Arnarfirði, búðarsvein í Reykjavík, stúdent og stjórnmálamann í Kaupmannahöfn; unnustuna þolinmóðu, fóstursoninn Sigga litla, byltingar í Evrópu og baráttumál Íslendinga á 19. öld. Persónur sögunnar eru felldar inn í samtíma Jóns Sigurðssonar á lifandi og skemmtilegan hátt.

Höfundar sýningarinnar eru Brynhildur Þórarinsdóttir rithöfundur, sem m.a. hefur sent frá sér bæði Njálu og Eglu fyrir börn, og Sigurjón Jóhannsson myndlistarmaður, sem hefur langa reynslu af hönnun leikmynda og sýninga. Ólafur J. Engilbertsson sá um grafíska hönnun sýningar og kynningarefnis.

Viðfangsefni sýningarinnar mun koma út á bók seinna í vetur hjá Forlaginu.

Vakin er athygli á að fjölmiðlum gefst kostur á mynda sýninguna og ræða við Brynhildi og Sigurjón kl. 14:30, áður en sjálf opunarathöfnin hefst, og einnig að hitta Sólveigu Pétursdóttur, formann Afmælisnefndar að máli, fræðast nánar um afmælisárið og viðburði þess.

Nánari upplýsingar:

Guðrún Garðarsdóttir, verkefnisstjóri Þjóðmenningarhússins, sími 545 1400 gudrun@thjodmenning.is

Björn G. Björnsson, verkefnisstjóri Afmælisnefndar Jóns Sigurðssonar, sími 892 8441 bjorn@leikmynd.is

Til baka í fréttir Arnarfjörður