Langstærsta verkefni minningarársins er endurnýjun safns Jóns Sigurðssonar á Hrafnseyri við Arnarfjörð. Þar hefur sýningarrýmið verið stækkað verulega og ný sýning hönnuð frá grunni. Aðrar sýningar eru minni í sniðum og unnar í samstarfi við aðra. Meðal verkefna var gerð vandaðs margmiðlunarefnis og stafræn endurgerð skjallegra gagna Jóns Sigurðssonar til útgáfu á netinu.
Málþing um Jón Sigurðsson í tilefni af 100 ára afmæli Háskóla Íslands.