Langstærsta verkefni minningarársins er endurnýjun safns Jóns Sigurðssonar á Hrafnseyri við Arnarfjörð. Þar hefur sýningarrýmið verið stækkað verulega og ný sýning hönnuð frá grunni. Aðrar sýningar eru minni í sniðum og unnar í samstarfi við aðra. Meðal verkefna var gerð vandaðs margmiðlunarefnis og stafræn endurgerð skjallegra gagna Jóns Sigurðssonar til útgáfu á netinu.
Jónshús í Kaupmannahöfn
Nýtt margmiðlunarefni um Jón Sigurðsson tekið í notkun í Jónshúsi.
Bæklingur eftir Guðjón Friðriksson kynntur og sögugöngur hefjast um slóðir Jóns Sigurðssonar í Kaupmannahöfn á sunnudögum.