Samkeppni um sýningu á Hrafnseyri. Vinningstillagan "Tímanna rás". Höfundar: Basalt arkitektar ehf.

Myndasafn

Líf í þágu þjóðar

Hrafnseyri við Arnarfjörð.

Nýstárlegog spennandi sýning um líf og starf Jóns Sigurðssonar, einkahagi, vísindastörf og stjórnmálaþátttöku.

Lítil sýning um Jón Sigurðsson hefur verið á Hrafnseyri síðan 1980. Fljótlega tók undirbúningsnefndin ákvörðun um að leggja aðaláherslu á uppbyggingu á Hrafnseyri og nýja sýningu þar. Hornsteinum arkitektum var falið að gera tillögur um breytingar á húsnæði í samráði við Hrafnseyrarnefnd og byggingadeild forsætisráðuneytisins. Ákveðið var að taka alla neðri hæð hússins á Hrafnseyri undir nýja sýningu.

Efnt var til lokaðrar samkeppni um hugmyndir að nýrri sýningu. Átta fengu boð um þátttöku: Axel Hallkell Jóhannesson hönnuður, Árni Páll Jóhannsson hönnuður, Basalt arkitektar, Fíton auglýsingastofa, Ólafur J. Engilbertsson hönnuður/Sögumiðlun ehf, Snorri Freyr Hilmarsson hönnuður, Yrki arkitektar og Þórunn Sigríður Þorgrímsdóttir hönnuður.

Samkeppnisgögn voru afhent 10. febrúar 2010 og skilafrestur var til 26. apríl. Dómnefnd valdi tillöguna „Tímanna rás“ sem þótti bæði nýstárleg og spennandi. Höfundar tillögunnar reyndust vera Basalt arkitektar: Ene Cordt Andersen arkitekt, Hallmar Sigurðsson menningarstjórnunarfræðingur, Marcos Zotes-Lópes arkitekt, Sigríður Sigþórsdóttir arkitekt og Þórhallur Sigurðsson arkitekt. Guðjón L. Sigurðsson veitti lýsingaráðgjöf. Basalt arkitektar fá það verkefni að fullhanna sýninguna. Höfundur texta er Guðjón Friðriksson, sagnfræðingur og rithöfundur. Nýtt og vandað margmiðlunarefni verður tekið í notkun á sýningunni unnið af Gagarín ehf.

Unnið í samráði við Hrafnseyrarnefnd.

Sýningin verður opnuð á Hrafnseyrarhátíð 17. júní 2011.
Sjá nánar um samkeppnir