06.09 2010
Hinn 17. júní s.l. var hleypt af stokkunum almennri samkeppni um minjagripi og handverk til minningar um Jón Sigurðsson. Leitað er að vönduðum gripum sem sækja innblástur í menningu og sögu þjóðarinnar. Verðlaunafé er ein milljón króna. Fyrstu verðlaun eru 600 þúsund krónur og 400 þúsund krónur skiptast eftir nánari ákvörðun dómnefndar. Skilafrestur rennur út á hádegi mánudaginn 20. september n.k. Tillögum skal skilað sem teikningum af hlut eða ljósmyndum af fullunnum hlut. Sjá nánar hér.